Vatnshitastillir sem bilar í hálfopinni stöðu getur valdið ofhitun eða ofkælingu aflvélarinnar.
Vatnshitastillir sem bilar í lokaðri stöðu getur valdið óhóflegri ofhitun. Óhófleg ofhitun gæti valdið skemmdum á strokklokinu eða vandamálum með stimpilúrbræðslu.
Vatnshitastillir sem bilar í opinni stöðu veldur of lágum ganghita aflvélarinnar þegar hún er ekki notuð með fullu álagi. Lágur ganghiti aflvélar þegar hún er ekki notuð með fullu álagi gæti valdið óhóflegri uppsöfnun kolefnis innan í tjökkunum. Þessi óhóflega uppsöfnun kolefnis gæti valdið auknu sliti á stimpilhringjunum og sliti á slífinni.
TILKYNNING |
---|
Það að skipta ekki reglulega um vatnslás getur valdið verulegum vélarbilunum. Caterpillar vélar eru búnar affallskælikerfi og krefst þess að vélin sé notuð með vatnslás. Ef vatnslás er rangt settur í, getur það valdið yfirhitnun á vélinni og valdið skaða á strokkloki. Tryggið að nýr vatnslás sé settur í upprunalega stöðu. Tryggið að loftgat í vatnslás sé opið. Ekki nota fljótandi pakkningarefni á pakkningunni eða á yfirborði strokkloks. |
Sjá upplýsingar um hvernig skipta á um vatnshitastillinn í tveimur greinum í Disassembly and Assembly Manual, "Water Temperature Regulators - Remove and Water Temperature Regulators - Install" (handbók um sundurhlutun og samsetningu: vatnshitastillar – fjarlægja og vatnshitastillar – uppsetning) eða hafið samband við söluaðila Cat.
AthugiĆ° Ef eingöngu er skipt um vatnshitastillana skal tappa kælivökvanum af þangað til hann er kominn niður fyrir vatnshitastillishúsið.