Að breyta stjórnsniði vélarinnar með fjórvirkum loka (Ef til staðar)
Í hvert sinn sem skipt er um stjórnsnið vélarinnar ber að skipta um sniðspjald í stýrishúsinu þannig að það falli að hinu nýja sniði. Athugið samsvörun milli stjórnsniðs vélarinnar og sniðsins á spjaldinu í stýrishúsinu. Ef sniðin eru ekki eins, skiptið um spjald áður en vélin er notuð. Ef það er ekki gert, getur það valdið meiðslum. |
Ef vélin er búin með fjórvirkum ventli, er auðvelt að breyta stjórnsniði vélarinnar. Stjórnsniðinu er hægt að breyta í SAE kerfið, MHI kerfið, KOB kerfið eða hið fyrra SCM kerfið með því að breyta stöðu fjórvirka lokans. Til að breyta stöðu fjórvirka lokans, notið eftirfarandi aðferð.
Skýringarmynd 1 | g00682736 |
Fjórvirki lokinn (ef til staðar) er staðsettur fyrir framan vatnskassann.
Skýringarmynd 2 | g00682737 |
(a) Bolti
(b) Handfang (1) MHI stjórnsnið vélar (2) KOB Stjórnsnið vélar (3) SAE stjórnsnið vélar (4) Fyrra SCM stjórnsnið vélar |
- Losið bolta (a) og færið handfang (b) í æskilega stöðu. Handfangið má færa í stöðu (1), ( 2), (3), eða (4).
Staða (1) breytir stjórnsniði vélarinnar í MHI kerfið. Staða ( 2) breytir stjórnsniði vélarinnar í KOB kerfið. Staða (3) breytir stjórnsniði vélarinnar í SAE sniðið. Staða ( 4) breytir stjórnsniði vélarinnar í hið fyrra SCM snið.
- Eftir að stillt hefur verið á snið, herðið boltann til að festa handfangið.
Skýringarmynd 3 | g00102959 |
(A) SAE stjórnsnið vélar
(B) MHI stjórnsnið vélar (C) KOB stjórnsnið vélar (D) FyrraSCM stjórnsnið vélar |
Sniðin vinstra megin á myndinni sýna mögulega útfærslu fyrir vinstri stjórnstöng. Sniðin hægra megin á myndinni sýna mögulegar útfærslur fyrir hægri stjórnstöng.
Armur út (1) - Færið stjórnstöngina í þessa stöðu til að færa arminn út. |
Hægri snúningur (2) - Færið stöngina í þessa stöðu til að snúa efri hlutanum til hægri. |
Armur inn (3) - Færið stjórnstöngina í þessa stöðu til að færa arminn inn. |
Vinstri snúningur (4) - Færið stjórnstöngina í þessa stöðu til að snúa efri hlutanum til vinstri. |
Bóma niður (5) - Færið stjórnstöngina í þessa stöðu til að láta bómuna síga. |
Skófla losuð (6) - Færið stjórnstöngina í þessa stöðu til að losa úr skóflunni. |
Bómu lyft (7) - Færið stjórnstöngina í þessa stöðu til að lyfta bómunni. |
Skóflu lokað (8) - Færið stjórnstöngina í þessa stöðu til að loka skóflunni. |
HALDA (9) - Þegar stjórnstönginni er sleppt í hvaða stöðu sem er, fer stjórnstöngin aftur í HALDA stöðu. Hreyfing efri hluta stöðvast.
Hægt er að framkvæma tvær hreyfingar í senn með því að færa stöngina á ská.
Ef vélin er búin vökvafleyg, er virkni stöðu ( 6) og stöðu (8) frábrugðin.
Glussafleygur upp (6) - Færið stjórnstöngina í þessa stöðu til að lyfta vökvafleygnum.
Glussaafleygur niður (8) - Færið stöngina í þessa stöðu til að láta vökvafleyginn síga niður.
Að breyta stjórnsniði vélarinnar með tvívirkum loka (Ef til staðar)
Í hvert sinn sem skipt er um stjórnsnið vélarinnar ber að skipta um sniðspjald í stýrishúsinu þannig að það falli að hinu nýja sniði. Athugið samsvörun milli stjórnsniðs vélarinnar og sniðsins á spjaldinu í stýrishúsinu. Ef sniðin eru ekki eins, skiptið um spjald áður en vélin er notuð. Ef það er ekki gert, getur það valdið meiðslum. |
Auðvelt er að breyta stjórnsniði vélarinnar í SAE kerfið eða í staðal gröfukerfi (BHL) með því að breyta stöðu á tvívirkum loka (ef til staðar). Notið eftirfarandi aðferð við að breyta stöðu tvívirka lokans.
Skýringarmynd 4 | g00102962 |
Tvívirki lokinn er frama við vatnskassann.
Skýringarmynd 5 | g00104103 |
(a) Bolti
(b) Handfang |
- Losið bolta (a) og færið stöngina (b) í SAE stöðu eða í BHL stöðu.
Athugið Mynd 5 sýnir að tvívirki lokinn er í SAE stöðu.
- Eftir að stjórnsnið hefur verið stillt, herðið bolta (a) til að festa stöngina ( b).
Skýringarmynd 6 | g00102966 |
(A) SAE stjórnsnið vélar
(B) BHL Stjórnsnið fyrir staðalafturskóflu |
Sniðin vinstra megin á myndinni sýna mögulega útfærslu fyrir vinstri stjórnstöng. Sniðin hægra megin á myndinni sýna mögulegar útfærslur fyrir hægri stjórnstöng.
Armur út (1) - Færið stjórnstöngina í þessa stöðu til að færa arminn út. |
Hægri snúningur (2) - Færið stöngina í þessa stöðu til að snúa efri hlutanum til hægri. |
Armur inn (3) - Færið stjórnstöngina í þessa stöðu til að færa arminn inn. |
Vinstri snúningur (4) - Færið stjórnstöngina í þessa stöðu til að snúa efri hlutanum til vinstri. |
Bóma látin síga (5 ) - Færið stjórnstöngina í þessa stöðu til að láta bómuna síga. |