Rafmagni er hleypt á myndavélakerfið þegar svissað er Á.
Þrífa verður reglulega linsu myndavélarinnar og skjáinn. Leiðbeiningar varðandi þrif á linsu myndavélarinnar og skjá má finna í viðhaldskafla.
Skýringarmynd 1 | g01223051 |
Bakkmyndavél |
Við uppsetningu er sjónarhorn myndavélarinnar valið. Myndavélinni er stillt upp að aftan þannig að hún sýni öfugt sjónarhorn eins og spegilmynd.
Eftir uppsetningu ætti ekki að vera þörf á því að breyta stöðu myndavélanna við venjulegar notkunaraðstæður. Myndavélakerfið notar myndavél með föstum fókus sem er sett upp í verksmiðjunni, af söluaðila Cat eða viðurkenndum tæknimanni.
Skýringarmynd 2 | g02127574 |
Fjölnota litaskjár |
Myndir úr myndavélinni birtast á fjölnota litaskjánum. Þegar sett er í bakkgír birtir skjárinn sjálfkrafa myndir úr bakkmyndavélinni. Einnig er hægt að velja mynd frá myndavélinni hvenær sem er á valmynd skjásins. Frekari upplýsingar um skjámyndina og valmynd skjásins eru í notkunar- og viðhaldshandbók, "Eftirlitskerfi".