Skýringarmynd 1 | g01640335 |
Hefðbundin staðsetning fyrir þjónustuvísi loftsíu |
Skýringarmynd 2 | g01640336 |
Hefðbundinn þjónustuvísir loftsíu |
Sumar aflvélar kunna að vera búnar annars konar þjónustuvísi.
Fylgist með þjónustuvísinum. Hreinsið loftsíuna eða skiptið um hana við eftirfarandi aðstæður:
- Guli vísirinn fer á rauða svæðið.
- Rauði stimpillinn læsist í sjónmáli.
- Loftfyrirstaðan nær
6 kPa (25 to. af H2O) .
Þjónustuvísar eru mikilvæg hjálpartæki.
- Kannið hvort erfitt sé að endurstilla. Þjónustuvísirinn ætti að endurstillast eftir að ýtt hefur verið einu sinni til þrisvar sinnum.
- Fylgist með hreyfingu gula kjarnans þegar snúningur aflvélarinnar er aukinn í uppgefinn snúningshraða. Guli kjarninn ætti að læsast í námunda við mesta lofttæmi sem hægt er að ná.
Ef erfitt er að endurstilla þjónustuvísinn eða guli kjarninn læsist ekki við mesta lofttæmi ætti að skipta um þjónustuvísinn. Ef ekki er hægt að endurstilla nýja þjónustuvísinn kann tengingin fyrir þjónustuvísinn að vera stífluð.
Skýringarmynd 3 | g00351792 |
Gljúp sía |
Gljúp sía er hluti af vökvatengi sem er notað þegar þjónustuvísirinn er settur upp. Kannið hreinlæti síunnar. Hreinsið síuna ef með þarf. Notið þrýstiloft eða hreint, óeldfimt leysiefni.
Hugsanlega þarf að skipta oftar um þjónustuvísinn en ella ef mikil rykmyndun er í vinnuumhverfinu. Skiptið um þjónustuvísinn á hverju ári, sama hvernig ástandi hann er í. Skiptið um þjónustuvísinn þegar aflvélin er endurbyggð og í hvert sinn sem skipt er um stærri íhluti vélarinnar.
Athugið Þegar nýr þjónustuvísir er settur í getur efsti hluti hans brotnað ef of miklu afli er beitt. Herðið þjónustuvísinn með