TILKYNNING |
---|
Stjórntæki til neyðarstöðvunar á AÐEINS að nota í NEYÐARTILVIKUM. EKKI not neyðarstöðvunarbúnað eða stjórntæki við venjulega stöðvun. |
Tryggið að allir íhlutir fyrir ytra kerfið sem styðja við notkun aflvélarinnar séu festir eftir að aflvélin hefur stöðvast.
Neyðarstöðvun lokar fyrir eldsneytisflæði. Ef aflvélin er búin loftlokunum eru þær einnig virkjaðar.
TILKYNNING |
---|
Ekki ræsa vélina fyrr en fundin er bilunin sem olli stöðvuninni og gert hefur verið við hana. |
Hugsanlega er nauðsynlegt að endurstilla neyðarstöðvunarhnappinn áður en hægt er að gangsetja aflvélina aftur.
Ef neyðarstöðvunarhnappurinn er notaður þarf að endurstilla báðar loftlokanirnar áður en aflvélin er gangsett aftur.
Svissa þarf afli til stjórntölvu af og á aftur til að hægt sé að gangsetja aflvélina aftur.
Loftlokanir (ef þær eru til staðar)
Endurstillingarbúnaðurinn fyrir loftlokun í 3500 aflvélinni kann að líta út eins og eftirfarandi endurstillingarbúnaður.
Skýringarmynd 1 | g01676674 |
Loftlokanirnar eru gerðar virkar með olíuþrýstingi þegar rafstraumur til segulliða stöðvast. Hvor loftlokun er búin plötu sem snýst á skafti þegar loka þarf fyrir inntaksloft til millikælisins. Aflvélin stöðvast vegna skorts á loftstreymi í brunaholið. Lokað er fyrir loft við eftirfarandi skilyrði:
- Þegar ýtt er á neyðarstöðvunarhnappinn.
- Þegar loftlokunin verður virk.
- Þegar stöðva þarf aflvél vegna yfirsnúnings.
- Þegar stjórntölvan missir afl.
Endurstilling loftlokunar í eldri gerðum er framkvæmd með því að snúa endurstillingarhnúðinum í stöðuna "OPEN" (opið). Endurstilling loftlokunar í nýrri gerðum er framkvæmd með því að snúa boltanum þar til vísirinn bendir á "OPEN" (opið).
Tryggið að báðar loftlokanirnar séu endurstilltar áður en aflvélin er gangsett. Tryggið að gert sé við orsök neyðarstöðvunarinnar áður en aflvélin er gangsett.