Rafgeymar gefa frá sér eldfimar lofttegundir sem geta sprungið. Neisti getur kveikt í lofttegundunum. Þetta getur valdið alvarlegum slysum og dauða. Tryggið rétta loftræstingu þar sem rafgeymar eru í lokuðu rými. Fylgið réttri tilhögun til að koma í veg fyrir rafneista og eld nálægt rafgeymum. Ekki reykja meðan að unnið er við rafgeymi. |
Rafgeymakapla eða rafgeyma ætti aldrei að fjarlægja með rafgeymishlífinni. Fjarlægið alltaf rafgeymishlífina áður en viðhaldsvinna fer fram. Ef rafgeymakaplar eða rafgeymar eru fjarlægðir á meðan rafgeymishlífin er á myndast hætta á sprengingu í rafgeyminum og slysum á fólki. |
- Svissið aflvélina á OFF (slökkt). Aftengið allt rafmagn.
- Slökkvið á hleðslutækjum. Aftengið öll hleðslutæki.
- MÍNUSKAPALLINN "-" tengir MÍNUSSKAUT "-" rafgeymisins við MÍNUSSKAUT "-" startarans. Aftengið kapalinn frá MÍNUS-tengi "-" rafgeymisins.
- PLÚSKAPALLINN "+" tengir PLÚSSKAUT "+" rafgeymisins við PLÚSSKAUT "+" startarans. Aftengið kapalinn frá PLÚS-tengi "+" rafgeymisins.
Athugið Alltaf endurvinna rafgeymi. Aldrei farga rafgeymi. Skilið notuðum rafgeymum til viðeigandi endurvinnslufyrirtækja.
- Fjarlægið notaða rafgeyminn.
- Setjið nýjan rafgeymi í.
Athugið Áður en kaplarnir eru tengdir skal ganga úr skugga um að svissinum hafi verið snúið á OFF (slökkt).
- Tengdu kapalinn frá startaranum við PLÚS-tengi "+" rafgeymisins.
- Tengið kapallinn úr MÍNUSSKAUTINU "-" á startaranum við MÍNUSSKAUTIÐ "-" á rafgeyminum.