Þessi rafstöð er ætluð til framleiðslu á raforku.
Aflvél í 3500B rafstöð og aflvél í 3500C rafstöð eru rafstýrðar dísilvélar. Aflvélarnar eru með rafræna eldsneytisspíssa. Aflvélarnar kunna að vera búnar millikæli með vatnskápu eða millikæli með aðskilinni rafrás. Aflvélin getur bæði verið 12 strokka eða 16 strokka.
Skilvirkni og afköst aflvélarinnar eru háð því að farið sé eftir tilmælum um rétta notkun og viðhald. Notið ráðlagt eldsneyti, smurolíu og kælivökva. Hafið sérstaka gát í viðhaldi á loftsíu, eldsneytiskerfi, smurkerfi og kælikerfi. Frekari upplýsingar um viðhaldsvörur eru í þessari notkunar- og viðhaldshandbók, "Viðhaldsáætlun".
Þennan burstalausa rafal er hægt að nota við eftirfarandi álag: blandað álag mótora og ljósa, SCR-stýrðan búnað, tölvumiðstöðvar, samskiptabúnað og búnað til olíuborunar.
Hægt er að nota rafstöðvarnar fyrir aðalorkuframleiðslu eða fyrir varaorkuframleiðslu.
Rafalarnir eru nýttir í þriggja fasa heilbylgjusegulmögnun og -spennujöfnun. Rafalarnir eru annaðhvort fjögurra skauta eða sex skauta með sex eða tólf leiðslutengi. Rafalarnir geta framleitt rafmagn á annaðhvort 50 Hz eða 60 Hz tíðni.