Meiðsl geta hlotist af heitum kælivökva, gufu og alkalí. Við vinnuhita er kælivatnið heitt og undir þrýstingi. Vatnskassinn og allar leiðslur að miðstöðvum eða vélar innihalda heitan kælivökva eða gufu. Öll snerting getur orsakað bruna. Losið áfyllingarlokið varlega til að losa um þrýsting aðeins þegar dautt er á vélinni og vatnskassalokið er nægilega kalt til að snerta það með berum höndum. Ekki reyna að herða slöngutengi þegar kælivatnið er heitt, slangan getur losnað og valdið bruna. Íbótarefni kælivatns inniheldur alkalí. Forðist snertingu við húð og augu. |
TILKYNNING |
---|
Notið ávalt sér dælu fyrir olíu og aðra dælu fyrir kælivökva. Með því að nota sömu dælu fyrir báðar gerðir sýna getur það mengað sýnin sem eru tekin. Þetta getur orsakað ranga greiningu og rangan skilning sem gæti valdið umboði og viðskiptavini áhyggjum. |
TILKYNNING |
---|
Gæta verður þess að tryggja að vökvar séu geymdir meðan á framkvæmd eftirlits, viðhalds, prófunar, stillingar og viðgerðar á vörunni stendur. Vertu undir það búin(n) að safna vökvanum í hentug ílát áður en einhver hólf eru opnuð eða einhver íhlutur sem inniheldur vökva er tekinn sundur. |
Hægt er að prófa kælivökva hjá söluaðila Cat. Caterpillar S·O·S kælivökvagreiningin er besta leiðin til að fylgjast með ástandi kælivökvans og kælikerfisins. S·O·S kælivökvagreiningin er ferli sem byggir á reglulegum sýnatökum. Sjá Notkunar- og Viðhaldshandbókina, SEBU6250, "ráðleggingar um notkun vökva í Caterpillar vélum", "S.O.S kælivökvaprófun" fyrir nánari upplýsingar.
Gerið fyrstu kælivökvagreininguna (Stig 2) eftir upphaflegar 500 vinnustundir í kerfum sem innihalda kælivökva með lengri líftíma (ELC). Eftir fyrstu 500 vinnustundirnar skal gera greiningu á hverju ári.
- Leggið vélinni á jafnsléttu. Setjið vélina í hægan lausagang.
- Opnið vinstra hólf aflvélarinnar. Fjarlægið hlífina af sýnatökulokanum.
- Takið sýni. Varðandi frekari upplýsingar um greiningu á kælivökva, sjá sérrit, SEBU6250, "Caterpillar Machine Fluids Recommendations (tilmæli Caterpillar um notkun vökva í vinnuvélum)"(tilmæli Caterpillar um notkun vökva í vinnuvélum) eða leita ráða hjá söluaðila Cat.
- Setjið hlífina á aftur. Lokið vinstra aflvélarrýminu.
Skýringarmynd 1 | g03418402 |
Staðsetning sýnatökustaðar kælivökva |
Sendið sýnið í greiningu á stigi 2.