Skýringarmynd 1 | g01416712 |
Hefðbundin C18- dísilaflvél séð frá hægri |
Hugsanlega eru ýmsar gerðir öryggismerkinga á aflvélinni. Í kaflanum hér á eftir er farið yfir nákvæma staðsetningu öryggismerkinganna og þeim lýst nánar. Farið vandlega yfir allar öryggismerkingar.
Gætið þess að allar öryggismerkingar séu læsilegar. Hreinsið öryggismerkingar eða skiptið um þær ef þær eru ólæsilegar eða ef skýringarmyndirnar sjást ekki. Notið tusku, vatn og sápu til að þrífa öryggismerkingarnar. Ekki nota leysiefni, bensín eða önnur sterk efni. Leysiefni, bensín eða önnur sterk efni gætu losað límið sem festir öryggismerkin. Öryggismerkingar geta dottið af vélinni ef losað er um þær.
Setjið ný öryggismerki í stað þeirra sem eru skemmd eða vantar. Ef öryggismerking er fest á íhlut aflvélarinnar sem verið er að skipta út skal setja nýja öryggismerkingu á nýja íhlutinn. Nýjar öryggismerkingar fást hjá söluaðila Caterpillar.
Skýringarmynd 2 | g01370904 |
Öryggismerkingarnar fyrir almennu viðvörunina eru framarlega á aflvélinni báðum megin á undirstöðu ventilhlífarinnar. |
Ekki nota eða vinna við þessa vél nema þú hafir lesið og skilið fyrirmælin í Notkunar- og viðhaldshandbókinni. Ef ekki er farið eftir fyrirmælum eða aðvaranir hunsaðar getur það valdið meiðslum eða dauða. Fáðu nýjar handbækur hjá Caterpillar umboðinu. Rétt hirðing er á þína ábyrgð. |