Leitið eftir sliti og sprungum á reim riðstraumsrafals og viftudrifreimunum. Skiptið um reimar ef þær eru ekki í góðu ástandi.
Kannið strekkingu reima í samræmi við upplýsingar í þjónustuhandbókinni, "Tæknilýsingar".
Skrið lausra reima getur dregið úr afköstum keyrðra íhluta. Titringur í lausum reimum getur valdið óþarfa sliti á eftirfarandi íhlutum:
- Reimum
- Trissum
- Legum
Ofhertar reimar valda óþarfa álagi á íhluti. Slíkt dregur úr endingu íhluta.
Við aðstæður þar sem notaðar eru margar drifreimar skal skipta um drifreimar í settum. Ef skipt er um eina drifreim af mörgum þýðir það að meira átak lendir á nýju drifreiminni þar sem hinar eldri eru teygðar. Aukið álag á nýju drifreimina gæti valdið því að hún slitni.
Stilling reimar á riðstraumsrafal
- Fjarlægið reimahlífina.
- Losið festiboltana (1) og stilliboltann (2).
- Færið samstæðuna til að strekkja eða slaka á reiminni.
- Herðið stilliboltann (2). Herðið festiboltana (1).
- Setjið reimahlífina á.
Ef nýjar drifreimar eru settar í ber að athuga strekkingu þeirra aftur eftir 30 mínútna notkun aflvélarinnar við uppgefinn snúningshraða.
Skýringarmynd 1 | g00788814 |
- Fjarlægið reimahlífina.
- Losið festibolta trissunnar.
- Losið stilliró trissunnar.
- Færið trissuna til að stilla strekkingu reimarinnar.
- Herðið stilliróna.
- Herðið festiboltann.
- Setjið reimahlífina á.
Ef nýjar drifreimar eru settar í ber að athuga strekkingu þeirra aftur eftir 30 mínútna notkun aflvélarinnar við uppgefinn snúningshraða.