3512C Oil Well Service Engines Caterpillar


Engine Air Cleaner Element (Dual Element) - Inspect/Clean/Replace - If Equipped

Usage:

3516 JCG


TILKYNNING

Látið vél aldrei ganga án loftsíu. Aldrei láta vél ganga með skaddaða loftsíu. Ekki nota loftsíu með skaddaðar fellingar, pakkningar eða þéttingar. Óhreinindi sem komast inn í vélina valda ótímabæru sliti og tjóni á vélarhlutum. Loftsíur aðstoða við að koma í veg fyrir að svífandi agnir komist að loftinntaki vélar.



TILKYNNING

Aldrei hreinsa loftsíu með vél í gangi, þar sem það veldur því að óhreinindi komast inn í vélina.


Viðhald loftsíu

Ef loftsían stíflast kann loftstreymið að rífa síuefnið. Ósíað loft eykur stórlega innra slit í aflvél. Söluaðili Perkins býður upp á viðeigandi loftsíueiningar fyrir mismunandi notkun. Söluaðili Perkins veitir ráðleggingar um rétta loftsíueiningu.

  • Leitið daglega eftir óhreinindum í forhreinsaranum (ef til staðar). Fjarlægið óhreinindi eins og þarf.

  • Notkunarskilyrði (ryk og óhreinindi) kunna að valda þörf á auknu viðhaldi loftsía.

  • Nota má loftsíuna allt að sex sinnum ef hún er rétt hreinsuð og skoðuð.

  • Skipta verður um loftsíu að minnsta kosti einu sinni á ári. Þessi skipti ætti að framkvæma án tillits til fjölda hreinsana.

Skiptið óhreinum loftsíupappír út fyrir hreinan. Leitið vandlega eftir rifum og/eða holum í efni síunnar áður en hún er sett í. Leitið eftir skemmdum á pakkningu eða þétti loftsíunnar. Komið upp birgðum af viðeigandi loftsíum ef skipta þarf um loftsíu.

Tvöfaldar loftsíur

Tvöfaldar loftsíur eru með aðal- og aukaloftsíu. Nota má aðalloftsíuna allt að sex sinnum ef sían er rétt hreinsuð og skoðuð. Skipta verður um aðalloftsíu að minnsta kosti einu sinni á ári. Þessi skipti ætti að framkvæma án tillits til fjölda hreinsana.

Aukaloftsíunni er ekki hægt að halda við eða þrífa. Aukaloftsíuna skal fjarlægja og henni skal farga fyrir hver þrenn þrif á aðalloftsíunni. Þegar aflvélin er notuð í rykugu eða óhreinu umhverfi þarf hugsanlega að skipta oftar um loftsíur.



Skýringarmynd 1g00736431
(1) Hlíf
(2) Aðalloftsía
(3) Lofthreinsandi baksía
(4) Loftinntak forþjöppu

  1. Fjarlægið lokið. Fjarlægið aðalloftsíuna.

  2. Aukaloftsíuna skal fjarlægja og henni skal farga fyrir hver þrenn þrif á aðalloftsíunni.

    Athugið Sjá "Þrif á aðalloftsíu".

  3. Lokið loftinntaki forþjöppunnar með límbandi til að koma í veg fyrir óhreinindi.

  4. Þrífið loftsíuhlífina og húsið að innan með hreinum og þurrum klút.

  5. Takið límbandið af loftinntaki forþjöppunnar. Setjið aukaloftsíuna í. Setjið nýja aðalloftsíu í eða aðalloftsíu sem hefur verið þrifin.

  6. Setjið lokið á lofthreinsarann.

  7. Endurstillið loftsíumælinn.

Þrif á aðalloftsíu


TILKYNNING

Perkins mælir með að nota vottaða og sérhæfða hreinsun á loftsíum sem er í boði hjá söluaðilum Perkins. Hreinsiaðferð Perkins tryggir stöðugleika í gæðum og nægilega endingu síunnar.

Athugið eftirfarandi tilmæli ef hreinsa á síueininguna:

Aldrei má banka eða berja í síuna til að losa ryk.

Ekki skal þvo síueininguna.

Notið lágþrýst loft til að blása ryk úr síunni. Loftþrýstingur má ekki fara yfir 207 kPa (30 psi). Beinið loftinu upp og niður fellingarnar innan í síunni. Gætið þess sérstaklega að skemma ekki fellingarnar.

Ekki nota loftsíur með skemmdar fellingar, pakkningar eða þéttingar. Ef óhreinindi komast í aflvélina veldur það skemmdum á íhlutum hennar.


Nota má aðalloftsíuna allt að sex sinnum ef sían er rétt hreinsuð og skoðuð. Þegar aðalloftsían er hreinsuð skal athuga hvort síuefnið hefur rifnað eða slitnað. Skipta verður um aðalloftsíu að minnsta kosti einu sinni á ári. Þessi skipti ætti að framkvæma án tillits til fjölda hreinsana.

Notið hreina aðalloftsíu á meðan óhreina loftsían er þrifin.


TILKYNNING

Ekki hreinsa aðalloftsíu með því að dumpa eða slá úr henni. Þetta gæti skaðað þéttingarnar. Ekki nota síu með skemmdum fellingum, pakkningum eða þéttingum. Skemmdar síur hleypa óhreinindum í gegnum sig. Skemmdir á vél gæti hlotist af.


Skoðið aðalloftsíuna fyrir hreinsun. Leitið eftir skemmdum á þétti, pakkningum og ytra byrði loftsíunnar. Fargið skemmdum loftsíum.

Tvær algengar leiðir eru til að þrífa aðalloftsíur:

  • Þrýstiloft

  • Ryksugun

Þrýstiloft

Þrýstiloft má nota til að þrífa aðalloftsíu sem ekki hefur verið þrifin oftar en tvisvar sinnum. Þrýstiloft fjarlægir ekki kolefni og olíu. Notið síað, þurrt loft með 207 kPa (30 psi) hámarksþrýstingi.



Skýringarmynd 2g00281692

Athugið Þegar aðalloftsía er þrifin skal alltaf byrja á hreinu hliðinni (að innan) til að þrýsta óhreinindum að óhreinu hliðinni (ytra byrði).

Beinið slöngunni þannig að loftið flæði innan í síunni langsum eftir síunni til að koma í veg fyrir skemmdir á pappírsfellingunum. Ekki beina loftstraumnum beint að aðalloftsíunni sjálfri. Óhreinindi gætu farið lengra inn í fellingarnar.

Athugið Sjá "Aðalloftsíur skoðaðar".

Ryksugun

Ryksugun er góð leið til að þrífa loftsíur sem þurfa dagleg þrif vegna þurrs og rykugs umhverfis. Mælt er með hreinsun með þrýstilofti áður en ryksugun fer fram. Ryksugun fjarlægir ekki kolefni eða olíu.

Athugið Sjá "Aðalloftsíur skoðaðar".

Aðalloftsíur skoðaðar



Skýringarmynd 3g00281693

Skoðið hreina og þurra aðalloftsíuna. Notið 60 W blátt ljós í myrkraherbergi eða við svipaðar aðstæður. Setjið bláa ljósið inn í aðalloftsíuna. Snúið aðalloftsíunni. Leitið eftir rifum og/eða götum í aðalloftsíunni. Athugið hvort ljós kemur í gegnum aðalloftsíuna. Ef þörf krefur skal bera aðalloftsíuna saman við nýja aðalloftsíu með sama hlutarnúmer.

Notið ekki aðalloftsíu sem er með rifum og/eða götum. Notið ekki aðalloftsíu með skemmdum fellingum, pakkningum eða þéttingum. Fargið skemmdum aðalloftsíum.

Geymsla aðalloftsía

Ef aðalloftsía sem hefur staðist skoðun er ekki notuð má geyma hana til notkunar síðar.



Skýringarmynd 4g00281694

Ekki nota málningu, vatnsþéttar umbúðir eða plast sem vörn fyrir geymslu aðalloftsíu. Það gæti valdið of litlu loftstreymi. Verjið aðalloftsíuna gegn óhreinindum og skemmdum með því að vefja hana inn í pappír með vörn gegn tæringu rokgjarnra efna (VCI).

Setjið aðalloftsíuna í kassa fyrir geymslu. Merkið kassann að utan og merkið aðalloftsíuna. Eftirfarandi upplýsingar ættu að koma fram:

  • Hreinsunardagur

  • Fjöldi hreinsana

Geymið kassann á þurrum stað.

Caterpillar Information System:

Back to top
The names Caterpillar, John Deere, JD, JCB, Hyundai or any other original equipment manufacturers are registered trademarks of the respective original equipment manufacturers. All names, descriptions, numbers and symbols are used for reference purposes only.
CH-Part.com is in no way associated with any of the manufacturers we have listed. All manufacturer's names and descriptions are for reference only.