3406E, C-10 and C-12 Truck Engines Caterpillar


Fuel System Primary Filter/Water Separator - Drain

Usage:

3406E 1LW

------ VIÐVÖRUN! ------

Eldsneyti sem lekur eða slettist á heita fleti eða rafmagnshluti getur valdið eldsvoða. Til að koma í veg fyrir hugsanlegt líkamstjón, snúið svissinum á OFF þegar skipt er um eldsneytissíur eða síu í vatnsskilju. Hreinsið strax upp eldsneyti sem fer til spillis.



TILKYNNING

Gæta verður þess að tryggja að vökvar séu geymdir meðan á framkvæmd eftirlits, viðhalds, prófunar, stillingar og viðgerðar á vörunni stendur. Vertu undir það búin(n) að safna vökvanum í hentug ílát áður en einhver hólf eru opnuð eða einhver íhlutur sem inniheldur vökva er tekinn sundur.

Sjá Sérrit, NENG2500, "Vörulisti þjónustuverkfæra Caterpillar-umboðs" vegna verkfæra og aðfanga sem hentug eru til að safna og innihalda vökva úr Cat vörum.

Fargaðu öllum vökvum í samræmi við staðarreglugerðir og tilskipanir.



TILKYNNING

Leyfið ekki óhreinindum að komast inn í eldsneytiskerfið. Hreinsið gaumgæfilega svæði umhverfis þann hluta eldsneytiskerfisins sem á að aftengja. Komið fyrir hentugu loki yfir aftengdan hluta eldsneytiskerfisins.




Skýringarmynd 1g01453091
(1) Eining
(2) Skál
(3) Afrennslisloki

Skálina (2) á að athuga daglega til að gá að vatni. Tappið vatni af skálinni ef það er til staðar.

  1. Opnið afrennslislokann (3). Afrennslislokinn er sjálfkælandi afrennslisloki. Látið afrennslisvatnið renna í hentugt ílát. Fargið vatninu á viðeigandi hátt.

  2. Lokið afrennslislokanum (3).


TILKYNNING

Sogkraftur er í vatnsskiljunni meðan á eðlilegri notkun stendur. Tryggið að aftöppunarlokinn sé vel hertur til að hindra að loft komist inn í eldsneytiskerfið.


Back to top
The names Caterpillar, John Deere, JD, JCB, Hyundai or any other original equipment manufacturers are registered trademarks of the respective original equipment manufacturers. All names, descriptions, numbers and symbols are used for reference purposes only.
CH-Part.com is in no way associated with any of the manufacturers we have listed. All manufacturer's names and descriptions are for reference only.