Skýringarmynd 1 | g03267697 |
Útsláttarrofi rafgeymisins er undir hleranum að rafgeymishólfinu, vinstra megin á vinnuvélinni.
Skýringarmynd 2 | g00406959 |
KVEIKT - Setjið lykil útsláttarrofa rafgeymis í og snúið honum réttsælis til þess að kveikja á rafkerfinu. Rofinn verður að vera í stöðu ON (kveikt) áður en vélin er ræst. |
SLÖKKT - Snúið lyklinum rangsælis til að slökkva á rafkerfinu. |
Rafgeymarofinn virkar öðru vísi en svisslykilinn. Þegar rafgeymarofinn er í stöðu OFF (AF), er rafkerfið óvirkt. Rafgeymirinn er áfram tengdur við rafkerfið þegar svisslyklinum er snúið í stöðuna OFF (SLÖKKT).
Fjarlægið lykilinn þegar vélin er skilin eftir yfir nótt eða þegar vélin er yfirgefin um lengri tíma. Fjarlægið einnig lykilinn þegar rafkerfið er þjónustað.
TILKYNNING |
---|
Snúið útsláttarrofa rafgeymisins aldrei á SLÖKKT þegar aflvélin er í gangi. Það gæti skemmt rafkerfið. |
Athugun á kerfi rafgeymarofa (útsláttarrofa)
TILKYNNING |
---|
Til að tryggja að engar skemmdir verði á vélinni skal ganga úr skugga um að vélin sé í lagi áður en hún er ræst. Ekki starta vél sem er ekki alveg vinnufær. |
Framkvæmið eftirfarandi aðgerð til að athug kerfi rafgeymarofa.
- Snúið útsláttarrofa í stöðuna ON (KVEIKT) og gangið úr skugga um að öll raftæki í stýrishúsi virki sem skyldi. Aðgætið hvort vinnustundamælir birti upplýsingar. Aðgætið hvort hægt sé að ræsa vélina.
- Snúið útsláttarrofanum í stöðuna OFF (SLÖKKT).
- Gangið úr skugga um að eftirfarandi hlutir séu ekki virkir: rafbúnaður í stýrishúsinu, vinnustundamælir og gangsetning aflvélar. Ef einhverjir hlutanna virka áfram eftir að búið er að slá ÚT með útsláttarrofa skal hafa samband við söluaðila Cat.