3412E and C30 Marine Engines Caterpillar


Walk-Around Inspection

Usage:

3412E 9KS

Leitið eftir leka og lausum tengingum í aflvélinni

Aðeins ætti að taka nokkrar mínútur að ganga í kringum aflvélina og skoða hana. Með því að gefa sér tíma til að framkvæma slíka skoðun má koma í veg fyrir dýrar viðgerðir og slys.

Til að hámarka endingartíma aflvélarinnar skal skoða vélarrýmið vandlega áður en aflvélin er ræst. Lítið eftir atriðum eins og: olíuleka, leka á kælivökva, lausum boltum, slitnum reimum og lausum tengingum. Gerið við eftir þörfum:

  • Hlífarnar verða að vera á réttum stað. Gerið við skemmdar hlífar eða setjið nýjar hlífar ef þær vantar.

  • Þurrkið af öllum lokum og töppum áður en viðhald á aflvélinni fer fram til þess að minnka líkurnar á að óhreinindi komist í kerfið.


TILKYNNING

Hreinsið upp alla vökva sem hafa lekið (kælivökva, olíu eða eldsneyti). Ef leki sést kannið hvar hann er og gerið við. Ef grunur er um leka skal athuga vökvahæð oftar en gert er ráð fyrir þar til lekinn finnst eða gert er við hann, eða þar til grunurinn reynist byggður á röngum forsendum.



TILKYNNING

Uppsöfnuð feiti og/eða olía á vél eða yfirborði skapar eldhættu. Fjarlægið þessar agnir með gufuhreinsun eða háþrýstidælu.


  • Tryggið að kælivökvalagnir séu tryggilega festar. Leitið eftir leka. Athugið ástand allra leiðsla.

  • Athugið olíuhæð í gírkassanum. Sjá tæknilýsingar frá framleiðanda gírkassa skipsins eða sjá tæknilýsingar frá framleiðanda skipsins.

  • Leitið eftir kælivökvaleka í vatnsdælum.

AthugiĆ° Þétti vatnsdælunnar er smurt með kælivökva í kælikerfinu. Eðlilegt er að minniháttar leki eigi sér stað við kólnun aflvélar.

Mikill leki kælivökva getur bent til þess að skipta þurfi um þétti vatnsdælunnar. Upplýsingar um hvernig á að fjarlægja og setja upp vatnsdælur og/eða þétti þeirra eru í þjónustuhandbók aflvélarinnar eða fást hjá söluaðila Cat.

  • Leitið eftir leka í smurkerfinu við fremra sveifarássþéttið, aftara sveifarássþéttið, olíupönnuna, olíusíurnar og lokahlífina.

  • Horfið eftir leka í eldsneytiskerfinu.

  • Athugið hvort sprungur og lausar klemmur eru á leiðslum loftinntakskerfisins og hnjám.

  • Leitið eftir sprungum, sliti eða öðrum skemmdum á reim riðstraumsrafals og aukadrifreimum.

Þegar skipta þarf um reimar í reimhjólum með mörgum grópum þarf að skipta um allar reimarnar samtímis. Ef aðeins er skipt um eina reim lendir meira átak á þeirri reim en þeim sem ekki voru endurnýjaðar. Eldri reimarnar eru teygðar. Umframálagið sem nýja reimin tekur á sig getur valdið því að hún slitni.

  • Tappið vatni og botnfalli af eldsneytisgeymum daglega til þess að tryggja að eingöngu ómengað eldsneyti fari inn í eldsneytiskerfið.

  • Athugið hvort lausar tengingar og slitnir eða trosnaðir vírar eru í raflögnum og rafleiðslukerfi.

  • Skoðið tengingar rafals.

  • Athugið hvort jarðtenging er vel tengd og í fullnægjandi ástandi.

  • Skoðið tengingar startara.

  • Athugið hvort jarðtenging stjórntölvu er vel tengd og í fullnægjandi ástandi.

  • Aftengið öll hleðslutæki rafgeyma sem ekki eru varin fyrir straumnotkun startmótors. Kannið ástand rafgeyma og stöðu rafvökva, nema aflvélin sé búin viðhaldsfríum rafgeymi.

  • Kannið ástand mælanna. Skiptið um alla mæla sem eru með sprungum. Skiptið um mæla sem ekki er hægt að kvarða.

Caterpillar Information System:

3054 Engine for Caterpillar Built Machines Crankshaft Main Bearings - Remove
3054 and 3056 Industrial and Generator Set Engines Cylinder Head Valves
G3606 and G3608 Engines Engine Oil Pan - Remove
Generator Set Control Panel for Switchgear Conversion Service Mode
3612 and 3616 Engines Engine Oil Filter Elements - Remove and Install
3054 Engine Valve Mechanism Cover
3412E and C30 Marine Engines Information Plate
3408E and 3412E Engines for Caterpillar Built Machines Unit Injector Sleeve - Install
3406E Truck Engines Electrical Ground Stud
Generator Set Control Panel for Switchgear Conversion Harness Code Mode
3408E and 3412E Engines for Caterpillar Built Machines Unit Injector Hydraulic Pump - Install
Generator Set Control Panel for Switchgear Conversion Normal Mode
G3606 and G3608 Engines Engine Oil Pan - Install
3054 Engine for Caterpillar Built Machines Engine Oil Relief Valve - Remove and Install
3054 and 3056 Industrial and Generator Set Engines Engine Oil Cooler - Install
Generator Set Control Panel for Switchgear Conversion Tattletale Mode
3608 Engine Engine Oil Pan - Disassemble
3054 Engine for Caterpillar Built Machines Crankshaft Pulley - Remove and Install
3054 and 3056 Industrial and Generator Set Engines Engine Oil Pump
Generator Set Control Panel for Switchgear Conversion Units Mode
3408E and 3412E Engines for Caterpillar Built Machines Front Cover - Remove
797 Off-Highway Truck Hydraulic System Relief Valve (Hoist)
3408E and 3412E Engines for Caterpillar Built Machines Valve Mechanism Cover Base - Remove and Install
Generator Set Control Panel for Switchgear Conversion Accessing Diagnostic Information
Back to top
The names Caterpillar, John Deere, JD, JCB, Hyundai or any other original equipment manufacturers are registered trademarks of the respective original equipment manufacturers. All names, descriptions, numbers and symbols are used for reference purposes only.
CH-Part.com is in no way associated with any of the manufacturers we have listed. All manufacturer's names and descriptions are for reference only.