3126E and 3126B Commercial and Truck Engines Caterpillar


Walk-Around Inspection

Usage:

3126B 1AJ

Leitið eftir leka og lausum tengingum í aflvélinni

Aðeins ætti að taka nokkrar mínútur að ganga í kringum aflvélina og skoða hana. Með því að gefa sér tíma til að framkvæma slíka skoðun má koma í veg fyrir dýrar viðgerðir og slys.

Til að hámarka endingartíma aflvélarinnar skal skoða vélarrýmið vandlega áður en aflvélin er ræst. Hugið sérstaklega að atriðum eins og olíuleka eða kælivökvaleka, lausum boltum, slitnum reimum, lausum tengingum og uppsöfnun rusls. Gerið við eftir þörfum:

  • Hlífarnar verða að vera á réttum stað. Gerið við skemmdar hlífar eða setjið nýjar hlífar ef þær vantar.

  • Þurrkið af öllum lokum og töppum áður en viðhald á aflvélinni fer fram til þess að minnka líkurnar á að óhreinindi komist í kerfið.


TILKYNNING

Hreinsið upp alla vökva sem hafa lekið (kælivökva, olíu eða eldsneyti). Ef leki sést kannið hvar hann er og gerið við. Ef grunur er um leka skal athuga vökvahæð oftar en gert er ráð fyrir þar til lekinn finnst eða gert er við hann, eða þar til grunurinn reynist byggður á röngum forsendum.



TILKYNNING

Uppsöfnuð feiti og/eða olía á vél eða yfirborði skapar eldhættu. Fjarlægið þessar agnir með gufuhreinsun eða háþrýstidælu.


  • Tryggið að kælileiðslur séu tryggilega festar og vel hertar. Leitið eftir leka. Athugið ástand allra leiðsla.

  • Leitið eftir kælivökvaleka í vatnsdælum.

AthugiĆ° Þétti vatnsdælunnar er smurt með kælivökva í kælikerfinu. Þegar aflvélin kólnar og vélarhlutar dragast saman er eðlilegt að dálítill leki eigi sér stað.

Mikill leki kælivökva getur bent til þess að skipta þurfi um þétti vatnsdælunnar. Upplýsingar um hvernig á að fjarlægja og setja upp vatnsdælur og/eða þétti þeirra eru í þjónustuhandbók aflvélarinnar eða fást hjá söluaðila Caterpillar.

  • Leitið eftir leka í smurkerfinu við fremra sveifarássþéttið, aftara sveifarássþéttið, olíupönnuna, olíusíurnar og lokahlífina.

  • Horfið eftir leka í eldsneytiskerfinu. Leitið eftir lausum klemmum eða lausum plastböndum á eldsneytisleiðslum.

  • Athugið hvort sprungur og lausar klemmur eru á leiðslum loftinntakskerfisins og hnjám. Tryggið að slöngur og rör snerti ekki aðrar slöngur, rör, rafleiðslukerfi o.s.frv.

  • Athugið hvort sprungur, slit eða aðrar skemmdir eru á reim fyrir riðstraumsrafal og aukadrifreimum.

Þegar skipta þarf um reimar í reimhjólum með mörgum grópum þarf að skipta um allar reimarnar samtímis. Ef aðeins er skipt um eina reim lendir meira átak á þeirri reim en þeim sem ekki voru endurnýjaðar. Eldri reimarnar eru teygðar. Umframálagið sem nýja reimin tekur á sig getur valdið því að hún slitni.

  • Tappið vatni og botnfalli af eldsneytisgeymum daglega til þess að tryggja að eingöngu ómengað eldsneyti fari inn í eldsneytiskerfið.

  • Athugið hvort lausar tengingar og slitnir eða trosnaðir vírar eru í raflögnum og rafleiðslukerfi.

  • Athugið hvort jarðtenging er vel tengd og í fullnægjandi ástandi.

  • Athugið hvort jarðtenging stjórntölvu við strokklok sé í góðu ásigkomulagi.

  • Aftengið öll hleðslutæki rafgeyma sem ekki eru varin fyrir straumnotkun startmótors. Kannið ástand rafgeyma og stöðu rafvökva, nema aflvélin sé búin viðhaldsfríum rafgeymi.

  • Kannið ástand mælanna. Skiptið um brotna mæla. Skiptið um mæla sem ekki er hægt að kvarða.
Back to top
The names Caterpillar, John Deere, JD, JCB, Hyundai or any other original equipment manufacturers are registered trademarks of the respective original equipment manufacturers. All names, descriptions, numbers and symbols are used for reference purposes only.
CH-Part.com is in no way associated with any of the manufacturers we have listed. All manufacturer's names and descriptions are for reference only.