Gangið úr skugga um að ekki sé hægt að gangsetja vélina meðan þessi aðgerð er framkvæmd. Til að koma í veg fyrir hugsanleg meiðsl, notið ekki startarann til að snúa svinghjólinu. Heitir vélarhlutir geta valdið bruna. Leyfið vélinn að kólna áður en mæling/stilling ventla fer fram. |
TILKYNNING |
---|
Þetta viðhald skal einungis framkvæmt af viðurkenndu starfsfólki. Tæmandi upplýsingar um aðferð við stillingu ventlabils fást í Service Manual - þjónustuhandbók eða hjá söluaðila Cat. Notkun á aflvélum frá Caterpillar með röngum ventlastillingum getur dregið úr afkastagetu. Þessi minnkuðu afköst gætu valdið mikilli eldsneytisnotkun og/eða stytt endingartíma íhluta aflvélarinnar. |
Gætið þess að aflvélin hafi stöðvast áður en ventlabilið er mælt. Til að fá sem nákvæmasta mælingu skal leyfa ventlunum að kólna áður en þessi viðhaldsvinna fer fram.
Frekari upplýsingar eru í Systems Operation, Testing and Adjusting, "Engine Valve Lash - Inspect/Adjust" – notkun kerfis, prófun og stilling: Ventlabil aflvélar – skoðun/stilling.