Skýringarmynd 1 | g03687946 |
Þessi vinnuvél er með stýrishús með innbyggðri veltigrind. Grindin er fyrir innan grind stýrishússins. Ekki rafsjóða á stýrishúsið við stoðir veltigrindarinnar, A, B eða C, né bora göt í stýrishúsið til að festa slökkvitæki. Plata (1) er hugsuð sem staður til að hengja upp hluti í stýrishúsinu. Plata (2) er hugsuð sem annar staður til að hengja upp hluti í stýrishúsinu. Hægt er að nota kraga (3) á C-stoðinni til að bolta hluti utan á stýrishúsið.
Athugið Hægt er að rafsjóða eða bora í plötur (1) og (2), ef með þarf.
Einn mögulegur staður til að festa slökkvitækið er hægra megin framan á vinnuvélinni. Festið slökkvitækið að framan, hægra megin við vélarrýmið og fyrir neðan efsta hluta vatnskassahlífarinnar. Ef vinnuvélin er með sóp skal festa slökkvitækið aftan á stýrishúsinu, fyrir aftan hliðarglugga.
Tilvísun: Frekari upplýsingar er að finna í Special Instruction, SEHS6929, "Inspection, Maintenance, and Repair of Operator Protective Structures (OPS) and Attachment Installation Guidelines" (sérstakar leiðbeiningar fyrir skoðun, viðhald og viðgerðir á yfirbyggingum og leiðbeiningar fyrir uppsetningu tengitækja).