D8R and D8T Track-Type Tractors Caterpillar


Refrigerant Dryer - Replace

Usage:

D8R DWJ

------ VIÐVÖRUN! ------

Meiðsl geta hlotist af snertingu við frystiefni.

Snerting við frystiefni getur valdið kali. Haldið andliti og höndum fjarri til að komast hjá slysum.

Ávallt ber að nota hlífðargleraugu þegar leiðslur með frystiefni eru opnaðar, jafnvel þó mælar sýni að kerfið sé laust við frystiefni.

Sýnið ávallt gætni þegar tengi er losað. Losið tengið hægt. Ef enn er þrýstingur á kerfinu, losið hann varlega í vel loftræstu rými.

Meiðsl eða dauði geta hlotist af að anda að sér frystiefni um logandi sígarettu.

Að anda að sér frystiefni úr loftkælikerfum gegnum logandi sígarettu eða aðra reykingaaðferð eða að anda að sér gufum sem losna við snertingu frystiefna úr loftkælikerfum við loga getur valdið líkamstjóni eða dauða.

Ekki reykja þegar unnið er við loftkælingar eða þegar frystiefnagas getur verið til staðar.

Notið vottaða endurvinnslukerru til að losa frystiefnið með réttum hætti úr loftkælingarkerfinu.




Skýringarmynd 1g01017640

Athugið Skipta ætti um "R-134a"-safnílát kæliþurrkara árlega. Sérstaklega rakar notkunaraðstæður kunna að útheimta tíðari endurnýjun þurrkarans. Einnig ætti að endurnýja þurrkarann ef loftkælingarkerfið hefur lekið eða ef kerfið hefur verið opnað vegna þjónustuviðgerðar.

Hægt er að komast að beintengda þurrkaranum með því að taka upp gólfplötur stýrishússins.

Tilvísun: Til að sjá rétt verklag, sjá Þjónustuhandbók um loftkæingu og hitun, SENR5664 eða Handbók um sundurtekt og samsetningu fyrir vélina þína.

Athugið Viðurkenndur vélvirki ætti að endurnýja íhluti kælimiðilskerfisins þar sem þörf er á sérstökum verkfærum og þjálfun.

Back to top
The names Caterpillar, John Deere, JD, JCB, Hyundai or any other original equipment manufacturers are registered trademarks of the respective original equipment manufacturers. All names, descriptions, numbers and symbols are used for reference purposes only.
CH-Part.com is in no way associated with any of the manufacturers we have listed. All manufacturer's names and descriptions are for reference only.