TILKYNNING |
---|
Látið vél aldrei ganga án loftsíu. Aldrei láta vél ganga með skaddaða loftsíu. Ekki nota loftsíu með skaddaðar fellingar, pakkningar eða þéttingar. Óhreinindi sem komast inn í vélina valda ótímabæru sliti og tjóni á vélarhlutum. Loftsíur aðstoða við að koma í veg fyrir að svífandi agnir komist að loftinntaki vélar. |
TILKYNNING |
---|
Aldrei hreinsa loftsíu með vél í gangi, þar sem það veldur því að óhreinindi komast inn í vélina. |
Ef loftsían stíflast kann loftstreymið að rífa síuefnið. Ósíað loft eykur stórlega innra slit í aflvél. Söluaðili Cat býður upp á viðeigandi loftsíueiningar fyrir mismunandi notkun. Söluaðili Cat veitir ráðleggingar um rétta loftsíueiningu.
- Leitið daglega eftir óhreinindum í forhreinsaranum (ef til staðar). Fjarlægið óhreinindi eins og þarf.
- Notkunarskilyrði (ryk og óhreinindi) kunna að valda þörf á auknu viðhaldi loftsía.
- Nota má loftsíuna allt að sex sinnum ef hún er rétt hreinsuð og skoðuð.
- Skipta verður um loftsíu að minnsta kosti einu sinni á ári. Þessi skipti ætti að framkvæma án tillits til fjölda hreinsana.
Skiptið óhreinum loftsíupappír út fyrir hreinan. Leitið vandlega eftir rifum og/eða holum í loftsíu áður en hún er sett í. Leitið eftir skemmdum á pakkningu eða þétti loftsíunnar. Komið upp birgðum af viðeigandi loftsíum ef skipta þarf um loftsíu.
Skýringarmynd 1 | g00735127 |
(1) Hlíf
(2) Loftsíueining (3) Loftinntak forþjöppu |
- Fjarlægið lokið af lofthreinsaranum. Fjarlægið loftsíueininguna.
Athugið Sjá "Hreinsun loftsíueininga".
- Lokið loftinntakinu með límbandi til að loka fyrir óhreinindi.
- Þrífið loftsíuhlífina og húsið að innan með hreinum og þurrum klút.
- Takið límbandið af loftinntakinu. Setjið nýja eða hreinsaða loftsíueiningu í.
- Setjið lokið á lofthreinsarann.
- Endurstillið loftsíumælinn.
TILKYNNING |
---|
Caterpillar mælir með notkun sérhæfðrar hreinsunarþjónustu fyrir loftsíur sem í boði eru hjá söluaðilum Cat . Hreinsiaðferð Cat tryggir stöðugleika í gæðum og nægilega endingu síunnar. Athugið eftirfarandi tilmæli ef hreinsa á síueininguna: Aldrei má banka eða berja í síuna til að losa ryk. Ekki skal þvo síueininguna. Notið lágþrýst loft til að blása ryk úr síunni. Loftþrýstingur má ekki fara yfir Ekki nota loftsíur með skemmdar fellingar, pakkningar eða þéttingar. Ef óhreinindi komast í aflvélina veldur það skemmdum á íhlutum hennar. |
Hægt er að nota loftsíueininguna allt að þrisvar sinnum ef hún er rétt hreinsuð og skoðuð. Þegar loftsíueiningin er hreinsuð skal athuga hvort síuefnið hafi rifnað eða slitnað. Skipta verður um loftsíu að minnsta kosti einu sinni á ári. Þessi skipti ætti að framkvæma án tillits til fjölda hreinsana.
Notið hreina loftsíueiningu á meðan óhreinu einingarnar er hreinsaðar.
TILKYNNING |
---|
Ekki hreinsa aðalloftsíu með því að dumpa eða slá úr henni. Þetta gæti skaðað þéttingarnar. Ekki nota síu með skemmdum fellingum, pakkningum eða þéttingum. Skemmdar síur hleypa óhreinindum í gegnum sig. Skemmdir á vél gæti hlotist af. |
Skoðið loftsíueiningarnar fyrir hreinsun. Leitið eftir skemmdum á þétti, pakkningum og ytra byrði loftsíunnar. Fargið skemmdum loftsíum.
Tvær algengar leiðir eru til að hreinsa loftsíur:
- Þrýstiloft
- Ryksugun
Þrýstiloft má nota til að hreinsa loftsíu sem ekki hefur verið hreinsuð oftar en tvisvar sinnum. Þrýstiloft fjarlægir ekki kolefni og olíu. Notið síað, þurrt loft með
Skýringarmynd 2 | g00281692 |
Athugið Þegar loftsía er hreinsuð skal alltaf byrja á hreinu hliðinni (að innan) til að þrýsta óhreinindum að óhreinu hliðinni (ytra byrði).
Beinið slöngunni þannig að loftið flæði innan í síunni og langsum eftir henni. Þetta kemur í veg fyrir skemmdir á pappírsfellingunum. Ekki beina loftstraumnum beint að loftsíunni sjálfri. Óhreinindi gætu farið lengra inn í fellingarnar.
Athugið Sjá "Skoðun loftsíueininga".
Ryksugun er góð leið til að hreinsa loftsíur sem þurfa dagleg þrif í þurru og rykugu umhverfi. Mælt er með hreinsun með þrýstilofti áður en ryksugun fer fram. Ryksugun fjarlægir ekki kolefni eða olíu.
Athugið Sjá "Skoðun loftsíueininga".
Skýringarmynd 3 | g00281693 |
Skoðið hreina og þurra loftsíueiningu. Notið 60 W ljós í myrkraherbergi eða við svipaðar aðstæður. Setjið ljósið inn í loftsíuna. Snúið loftsíunni. Leitið eftir rifum og/eða götum í loftsíunni. Athugið hvort ljós kemur í gegnum loftsíuna. Til að staðfesta niðurstöðurnar skal, ef þess er þörf, bera síuna saman við nýja síu með sama hlutarnúmeri.
Notið ekki loftsíueiningu með rifum og/eða götum. Notið ekki loftsíueiningu með skemmdum fellingum, pakkningum eða þéttingum. Fargið skemmdum loftsíueiningum.
Ef loftsíueining sem hefur staðist skoðun er ekki notuð má geyma hana til notkunar síðar.
Skýringarmynd 4 | g00281694 |
Ekki nota málningu, vatnsþéttar umbúðir eða plast sem vörn fyrir geymslu aðalloftsíu. Takmarkað loftflæði kann að hljótast af. Verjið loftsíueininguna gegn óhreinindum og skemmdum með því að vefja hana inn í VCI-pappír (vörn gegn tæringu rokgjarnra efna).
Setjið loftsíueininguna í kassa fyrir geymslu. Merkið kassann að utan og merkið loftsíueininguna. Eftirfarandi upplýsingar ættu að koma fram:
- Hreinsunardagur
- Fjöldi hreinsana
Geymið kassann á þurrum stað.