AthugiĆ° Ef viðskiptavinurinn hefur valið "AFLMINNKUN" og olíuþrýstingur er lágur takmarkar stjórntölvan afl aflvélarinnar þar til vandamálið hefur verið lagfært. Ef olíuþrýstingurinn er innan eðlilegra marka er hægt að keyra aflvélina á nafnsnúningshraða og -álagi. Aftur á móti þarf að framkvæma viðhald svo fljótt sem auðið er. Frekari upplýsingar um blikkkóða er að finna í notkunar- og viðhaldshandbók, "Blikkandi bilunarkóði sóttur".
Kanna skal virkan greiningarkóða. Leiðrétta ætti það sem veldur vandamálinu eins fljótt og unnt er. Vinnsla og afköst aflvélarinnar geta verið takmörkuð þegar virkur greiningarkóði er til staðar. Ef ástæðan fyrir virkum greiningarkóða er lagfærð og aðeins einn virkur greiningarkóði er til staðar mun slokkna á greiningarljósinu.