Vinnsluskilyrði aflvélar hafa áhrif á viðhaldstímabil og þann tíma sem líður á milli endurbygginga aflvélarinnar. Eftirfarandi skilyrði hafa áhrif á viðhaldstímabil og áætlaðan tíma á milli endurbygginga aflvélarinnar.
Álagsnotkun telst vera sú notkun aflvélarinnar þar sem farið er fram úr útgefnum og gildandi stöðlum hvað varðar notkun hennar. Caterpillar viðheldur stöðlum fyrir eftirfarandi færibreytur aflvélarinnar:
- Hestöfl
- Snúningshraðasvið
- Eldsneytisnotkun
- Gæði eldsneytis
- Hæð yfir sjávarmáli
- Viðhaldstímabil
- Val á smurolíu
- Val á kælivökva
- Gæði umhverfisaðstæðna
- Uppsetning
Miðið við staðla aflvélarinnar eða leitið ráða hjá söluaðila Caterpillar til að ákvarða hvort notkun aflvélarinnar er innan skilgreindra færibreyta.
Álagsnotkun getur flýtt fyrir sliti á íhlutum. Aflvélar sem notaðar eru við erfiðar aðstæður kunna að þurfa tíðara viðhald af eftirtöldum ástæðum:
- Vegna hámarks áreiðanleika
- Til að ná fullri endingu
Vegna þess að hver notkun er sértæk er ekki hægt að greina frá öllum þáttum sem leitt geta til álagsnotkunar. Leitið ráða hjá söluaðila Caterpillar hvað varðar nauðsynlegt viðhald fyrir þá aflvél sem um ræðir.
Neðangreindir þættir geta leitt til álagsnotkunar: umhverfisaðstæður, rangar notkunaraðferðir og rangar viðhaldsaðferðir.
Mjög hátt eða mjög lágt umhverfishitastig
Langvarandi notkun þar sem hitastig er mjög lágt eða mjög hátt getur valdið skemmdum á íhlutum. Ventilíhlutir geta skemmst af uppsöfnun sóts ef aflvél er ítrekað gangsett og hún stöðvuð í mjög miklum kulda. Mjög heitt inntaksloft dregur úr afkastagetu aflvélarinnar.
Athugið Sjá þessa notkunar- og viðhaldshandbók, "Notkun í köldu veðri" (í notkunarkaflanum) eða Supplement, SEBU5898, "Cold Weather Recommendations" (viðauki um tilmæli um notkun í köldu veðri).
Langvarandi notkun í skítugu og rykugu umhverfi getur valdið skemmdum á íhlutum ef búnaðurinn er ekki hreinsaður reglulega. Uppsöfnuð leðja, drulla og ryk geta umlukið íhluti. Þetta getur gert viðhald flókið. Uppsöfnuð efni geta innihaldið ætandi íðefni. Ætandi íðefni og salt getur valdið skemmdum á sumum íhlutum.
- Notkun til lengri tíma í hægum lausagangi
- Kælingartími eftir notkun með háum hleðslustuðli hafður í lágmarki
- Notkun aflvélarinnar fer fram úr viðmiðum fyrir afköst hennar
- Notkun aflvélarinnar við meira álag en gefið er upp fyrir hana
- Notkun aflvélarinnar á meiri hraða en gefinn er upp fyrir hana
- Notkun aflvélarinnar í aðstæðum sem ekki eru samþykktar
- Of langur tími látinn líða á milli viðhalds
- Notkun á eldsneyti, smurefni og kælivökva/frostlegi sem ekki er mælt með
Færri vinnustundir við fullt álag skila sér í minni aflþörf að meðaltali. Minni aflþörf að meðaltali ætti að lengja bæði endingu aflvélarinnar og tímann á milli þess sem endurbygging fer fram.
Aukin eldsneytisnotkun og minnkað afl gefur yfirleitt til kynna þörf fyrir endurbyggingu.
Eftirfarandi þættir skipta máli þegar tekin er ákvörðun um réttan tíma fyrir endurbyggingu aflvélar:
- Þörf fyrir fyrirbyggjandi viðhald
- Gæði eldsneytis sem notað er
- Vinnuskilyrði
- Niðurstöður S·O·S greiningar
Athugið Frekari upplýsingar um fyrstu endurbyggingu eru í notkunar- og viðhaldshandbókinni, "Endurbygging (fyrsta)".
Athugið Frekari upplýsingar um viðmikla endurbyggingu er að finna í notkunar- og viðhaldshandbókinni, "Viðamikil endurbygging".
Olíunotkun sem vísbending um þörf fyrir endurbyggingu
Upplýsingar um olíunotkun, eldsneytisnotkun og viðhald má nota til að áætla rekstrarkostnað í heild fyrir Caterpillar-aflvélina. Einnig má nota upplýsingar um olíunotkun til að áætla nauðsynlegt rúmtak viðbótarolíugeymis sem hentar fyrir viðhaldsmillibilið.
Olíunotkun er í hlutfalli við prósentutölu uppgefins álags á aflvélina. Þegar prósentutala álags á aflvélina er hækkuð eykst einnig magn þeirrar olíu sem notuð er á klukkustund.
Olíunotkun (sem hlutfall af afli (BSOC)) er mæld í grömmum á kílóvattstund (lb/bhp). Olíunotkun sem hlutfall af afli (BSOC) fer eftir álagi á aflvél. Hafið samband við söluaðila Caterpillar til að fá aðstoð við að ákvarða dæmigerða olíunotkun fyrir aflvélina.
Þegar olíunotkun aflvélar hefur aukist í þrefalda upphaflega olíunotkun sökum eðlilegs slits ætti að áætla endurbyggingu á aflvélinni. Hugsanlega verður samsvarandi aukning á þrýstileka og lítilleg aukning eldsneytisnotkunar.
Til að halda þeim tíma sem aflvélin stöðvast í lágmarki mælir Caterpillar Inc. með áætlaðri endurbyggingu á aflvél hjá söluaðila Caterpillar áður en aflvélin bilar. Þetta skilar sér í besta hlutfallinu milli kostnaðar og virðis.
Athugið Endurbygging fer fram með mismunandi hætti eftir notkun aflvélarinnar og eftir því hvaða söluaðili framkvæmir endurbygginguna. Hafðu samband við söluaðila Caterpillar til að fá sértækar upplýsingar um þá möguleika á endurbyggingu sem í boði eru og um endurbyggingarþjónustu til að auka endingu aflvélarinnar.
Áætluð endurbygging fyrir bilun gæti verið ákjósanlegur kostur af eftirtöldum ástæðum:
- Hægt er að koma í veg fyrir kostnað sem hlýst af ófyrirséðri stöðvun aflvélarinnar.
- Hægt er að endurnýta marga upprunalega hluti samkvæmt stöðlum fyrir endurnýtanlega hluti.
- Hægt er að auka endingu aflvélarinnar án þess að hætta sé á stórum óhöppum vegna vélarbilunar.
- Hægt er að ná besta hlutfallinu milli kostnaðar og virðis á hverja klukkustund aukinnar endingar.
Ef meiriháttar vélarbilun verður og taka verður aflvélina úr skrokknum eru margir kostir tiltækir. Framkvæma ætti endurbyggingu ef gera þarf við strokkstykkið eða sveifarásinn.
Ef hægt er að gera við strokkstykkið og/eða hægt er að gera við sveifarásinn ætti kostnaðurinn við endurbyggingu að vera á milli 40 og 50 prósent af kostnaði við nýja aflvél með svipuðum útskiptanlegum kjarna.
Þrjú atriði skila þessum lækkaða kostnaði:
- Sérstaklega hannaðir eiginleikar Caterpillar-aflvéla
- Varahlutir frá söluaðila Caterpillar
- Endurnýttir varahlutir frá Caterpillar Inc.