Ýmis atriði geta verið vísbending um að þörf sé á viðamikilli endurbyggingu.
- Aukin olíunotkun
- Aukinn hjáblástur í sveifarhúsi
- Heildareldsneytisnotkun
- Vinnustundir aflvélarinnar
- Niðurstöður greiningar á slitmálmum í smurolíu
- Aukinn hávaði og titringur
Aukning á slitmálmum í smurolíunni er vísbending um að viðgerða sé þörf á legum og yfirborði þar sem slit á sér stað. Aukinn hávaði og titringur eru vísbendingar um að viðgerða sé þörf á snúningsíhlutum.
Athugið Olíugreining kann að gefa til kynna minnkun á slitmálmum í smurolíunni. Hugsanlega eru strokkslífarnar slitnar og því slípast strokkurinn til. Aukin notkun á smurolíu mun einnig þynna út slitmálmana.
Auka skal eftirlit með aflvélinni eftir því sem vinnustundum hennar fjölgar. Leitið upplýsinga hjá söluaðila Cat um hvernig á að framkvæma viðamikla endurbyggingu.
Athugið Mögulega þarf einnig að gera við búnaðinn sem er keyrður þegar endurbygging á aflvélinni fer fram. Sjá handbók frá framleiðanda varðandi búnaðinn sem er keyrður.
Viðamikil endurbygging felur í sér alla vinnu sem er unnin við fyrstu endurbyggingu. Viðamikil endurbygging tekur lengri tíma og nota verður fleiri íhluti. Nota verður fleiri íhluti og fleiri starfsmenn til að endurbyggja aflvélina frá grunni.
Þegar viðamikil endurbygging á sér stað eru allar legur, þétti, pakkningar og íhlutir sem geta slitnað fjarlægðir. Íhlutirnir eru hreinsaðir og skoðaðir. Skipt er um íhlutina ef nauðsyn krefur. Athugað er með slit á sveifarásnum. Hugsanlega verður að endurslípa sveifarásinn. Að öðrum kosti er sveifarásnum skipt út fyrir nýjan Cat íhlut.
Söluaðili Cat býður upp á slíka þjónustu og íhluti. Söluaðili Caterpillar gengur úr skugga um að notkun íhlutanna sé í samræmi við samsvarandi tæknilýsingu.
Skiptið um eftirfarandi íhluti þegar viðamikil endurbygging fer fram:
- Kambáslegur
- Legur á stimpilstöng
- Sveifarásþétti
- Þrýstiskífur sveifaráss
- Rafrænir sambyggðir eldsneytislokar
- Fóðringar tannhjólasamstæðu
- Legur tannhjólasamstæðu
- Aðallegur
- Stimpilhringi
Íhlutir skoðaðir, endurbættir eða þeim skipt út
Skoðið eftirfarandi íhluti samkvæmt leiðbeiningum sem er að finna í handbókum frá Cat varðandi endurbyggingu. Frekari upplýsingar er að finna í Guidelines for Reusable Parts and Salvage Operations, SEBF8029, "Index of Publications on Reusability or Salvage of Used Parts - - Sérrit með atriðisorðaskrá yfir handbækur varðandi endurbyggingu eða björgun á notuðum íhlutum".
Endurbætið slitna íhluti eða skiptið um þá ef þörf krefur. Söluaðili Cat býður upp á slíka þjónustu og íhluti.
- Undirlyftur
- Þrýstiskífur kambáss
- Stimpilstangir
- Titringsdeyfi sveifaráss
- Samstæða strokkloka
- Strokkslífar
- Festingar aflvélar
- Olíuhreinsidæla
- Vírasamstæða aflvélar
- Þétti í útblástursgrein
- Físibelgur fyrir útblástursgrein
- Þrýstijafnaraloki fyrir eldsneyti
- Lofttæmingarbulla
- Eldsneytisdæla
- Pakkningar soggreinar
- Þétti soggreinar
- Olíukælikjarni
- Olíudæla
- Stimplar
- Stimpilboltar
- Dæla fyrir forsmurningu
- Þrýstistangir
- Hreyfiarmar
- Milliplata
- Hugbúnaðaruppfærsla
- Hverfilforþjappa
- Dynamic Gas Blending-íhlutir
Skoðið eftirfarandi íhluti samkvæmt leiðbeiningum sem er að finna í handbókum frá Cat varðandi endurbyggingu. Frekari upplýsingar er að finna í Guidelines for Reusable Parts and Salvage Operations, SEBF8029, "Index of Publications on Reusability or Salvage of Used Parts - - Sérrit með atriðisorðaskrá yfir handbækur varðandi endurbyggingu eða björgun á notuðum íhlutum".
- Millikæliskjarni
- Kambás
- Sveifarás
- Búnaður sem er keyrður (stilling)
- Vélarblokk aflvélar
- Stjórneining vélar
- Belghlífar útblásturs
- Kasthjól
- Fremri tannhjólasamstæða (gírar)
- Olíusogsigti
- Aftari tannhjólasamstæða
Leitið eftir skemmdum á leguvölum og kömbum kambássins.
Athuga skal hvort einhver eftirfarandi atriða sjást á sveifarásnum:
- Sveigja
- Skemmdir á leguvölum
- Leguefni sem hefur fest í leguvölum
Athugið uppmjókkun á leguvölum og útlínur á sveifarássvölum. Athugið þessa íhluti með því að meta slitið á eftirfarandi íhlutum:
- Stangarlegu
- Aðallegur
Athugið Ef sveifarásinn eða kambásinn er fjarlægður af einhverjum ástæðum skal nota skoðun með segulögnum til að leita að sprungum í sveifarásnum.
Skiptið um titringsdeyfi sveifarássins ef eftirfarandi ástand á við:
- Vélarbilun vegna þess að sveifarás brotnaði
- Óeðlilegt slit á fremri legum sveifarássins
- Óeðlilegt slit á tannhjólasamstæðunni sem er ekki vegna ónógrar smurningar
Skoðið tannhjól og fóðringar tannhjólasamstæðunnar og athugið hvort eftirfarandi ástand eigi við:
- Slitnar tannhjólatennur
- Íhlutur passar illa í
- Óeðlilegt slit
Auk þess að skoða íhlutina skal skoða stillingu búnaðar sem er keyrður. Frekari upplýsingar er að finna í Application and Installation Guide - Leiðarvísi um notkun og uppsetningu fyrir aflvélina eða í leiðbeiningum frá framleiðanda keyrða búnaðarins.
Skoðið og smyrjið eftirfarandi (ef til staðar):
- Tvöfaldan tengibúnað olíustjórnloka
Hreinsið kjarna olíukælisins og kjarna millikælisins. Þrýstingsprófið svo báða kjarnana. Upplýsingar um þrif á kjörnunum er að finna í þessari notkunar- og viðhaldshandbók, "Millikæliskjarni - þrif/prófun".
Þrífið olíusogsigtið. Fjarlægið einnig hliðarhlífarnar til að þrífa olíupönnuna. Leiðbeiningar fyrir losun og uppsetningu íhluta er að finna í þjónustuhandbókinni, "Taka í sundur og setja saman".
Ef notaður er hefðbundinn, þolmikill kælivökvi/frostlögur skal athuga reglulega þéttni íblöndunarefnis fyrir kælivökva (SCA). Hægt er að kanna styrk íblöndunarefnis fyrir kælivökva (SCA) með S·O·S greiningu á kælivökva (1. stigi). Mælt er með frekari kælivökvagreiningu með reglubundnu millibili.
Til dæmis gætu töluverðar útfellingar fundist á vatnskápusvæðunum á ytra kælikerfinu, þrátt fyrir að vandlega hafi verið fylgst með styrkleika íbætiefna í kælivökva. Kælivökvinn innihélt líklega steinefni sem hafa myndað útfellingar í aflvélinni til lengri tíma.
Hægt er að gera kælivökvagreiningu til þess að staðfesta ástand vatnsins sem notað er í kælikerfinu. Eftirfarandi aðilar bjóða upp á heildstæða vatnsgreiningu:
- Söluaðila Caterpillar
- Vatnsveitu
- Landbúnaðarráðunaut
- Sjálfstæða rannsóknarstofu
Caterpillar mælir með S·O·S greiningu á kælivökva (II. stigs). Þessi greining er yfirgripsmikil efnafræðileg greining á kælivökvanum. Þessi greining er einnig athugun á almennu ástandi á kælikerfinu innanverðu. Eftirfarandi þjónusta er í boði:
- (1. stig) Ein greining
- Greining á orsökum málmtæringar og mengunar
- Greiningu á uppsöfnun óhreininda sem valda tæringu
- Greiningu á uppsöfnun óhreininda sem valda hrúðurmyndun
- Greining á hugsanlegri rafgreiningu innan kælikerfis aflvélarinnar
Skýrsla er lögð fram með niðurstöðum úr greiningunni. Niðurstöðurnar eru notaðar til að gefa tilmæli varðandi viðhald.
Frekari upplýsingar um S·O·S greiningu á kælivökva fást hjá söluaðila Cat.