Persónuleg meiðsl eða dauði geta hlotist af ef ekki er fylgt eftirfarandi atriðum. Eldfimir vökvar sem leka eða hellast niður á heita fleti eða á rafbúnað geta valdið eldsvoða. Hreinsið upp allt eldsneyti sem lekur niður eða sullast. Ekki reykja á meðan unnið er við eldsneytiskerfið. Snúið höfuðrofa í OFF stöðu eða aftengið rafgeyminn þegar skipt er um eldsneytissíur. |
TILKYNNING |
---|
Ekki fylla eldsneytissíur með eldsneyti áður en þær eru settar á sinn stað . Eldneytið síast ekki og gæti verið mengað. Mengað eldsneyti veldur hraðara sliti á hlutum eldsneytiskerfis. |
- Opnið fremri hlífina vinstra megin á vélinni.
Show/hide table
Skýringarmynd 1 g00752052 (1) Affallsloki
(2) Gruggkúla
(3) Sía
(4) Síusæti - Snúið affallsloka (1) andsælis til að opna. Affallslokinn er neðan á vatnsskiljunni.
Athugið Sjá Notkunar- og viðhaldshandbókina , "Almennar upplýsingar um hættu" varðandi upplýsingar um meðhöndlun spillivökva.
- Látið vatn og set renna í hentugt ílát.
Athugið Fargið notuðum vökvum í samræmi við reglur á hverjum stað.
- Lokið affallslokanum (1).
- Fjarlægið síu (3) af síusæti ( 4). Það getur þurft að nota síutöng til að losa síuna.
Athugið Vatnsskiljusían er hylkissía. Síuna er ekki hægt að nota aftur.
- Fjarlægið síu (3) af gruggkúlu ( 2). Fargið notuðu síunni.
- Hreinsið síusætið (4) og gruggkúlu (2).
Show/hide table
Skýringarmynd 2 g00752055 (2) Gruggkúla
(3) Sía
(5) Hetta
(6) Pakkning - Fjarlægið hettu (5) neðan af nýju síunni (3). Fjarlægið pakkningu (6) úr hettu (5).
- Komið pakkningu (6) í gróp í kúlu (2).
Show/hide table
Skýringarmynd 3 g00752056 (2) Gruggkúla
(3) Sía
(4) Síusæti - Setjið gruggkúlu (2) á nýju síuna (3). Festið kúlu ( 2) tryggilega við síu (3).
- Setjið síu (3) á síusæti ( 4). Herðið síu (3) tryggilega við síusæti (4).
Athugið Ekki ræsa vélina fyrr en búið er að þjónusta eldsneytiskerfið að fullu. Varðandi fyrirmæli um lofttæmingu eldsneytiskerfisins, sjá Notkunar- og viðhaldshandbókina , "Eldsneytiskerfi - Loofttækið" .
- Lokið hlífinni.