Við val á afli fyrir tiltekna notkun, er það mikilvægasta sem þarf að hafa í huga er sá tími sem er varið á fullri inngjöf. Þessar skilgreiningar afls gefa til kynna prósent af tíma á fullri inngjöf. Þessar skilgreiningar gefa einnig til kynna samsvarandi tíma fyrir neðan uppgefinn snúningshraða á mínútu.
A (ótakmarkað samfellt) - Skip sem notuð eru með uppgefnu álagi og uppgefnum hraða að 100% tímans án rofs eða þrepaskiptingar (80% til 100% álagsþáttur). Dæmigerð notkun er 5000 vinnustundir til 8000 vinnustundir á ári. Dæmigerð notkun getur innifalið eftirfarandi skip: flutningaskip, dráttarbáta og togara á botnfiskveiðum.
B (þolmikil notkun) - Skip sem notuð eru með uppgefnu álagi og hraða að 80% tímans án rofs eða þrepaskiptingar (40% til 80% álagsþáttur). Dæmigerð notkun er frá 1000 vinnustundum til 3000 vinnustunda á ári. Dæmigerð notkun getur innifalið eftirfarandi skip: togara á köldum hafsvæðum, hringnótabáta, farþegabáta, birgðaskip, ferjur og dráttarbáta.
C (stöðugt hámark) - Skip sem notuð eru með uppgefnu álagi og uppgefnum hraða allt að 50% tímans með síendurteknu álagi og hraða (20% til 80% álagsþáttur). Dæmigerð notkun er frá 2000 vinnustundum til 4000 vinnustunda á ári. Dæmigerð notkun getur innifalið eftirfarandi skip: ferjur, dráttarbáta í höfnum, fiskibáta, þjónustuskip við borpalla, skemmtisnekkjur og strandferðaskip.
D (ósamfelld notkun) - Skip sem notuð eru með uppgefnu álagi og uppgefnum hraða allt að 16% tímans (allt að 50% álagsþáttur). Dæmigerð notkun er frá 1000 vinnustundum til 3000 vinnustunda á ári. Dæmigerð notkun getur innifalið eftirfarandi skip: eftirlitsbátar, tollbátar, lögreglubáta, fiskibáta, slökkvibáta og dráttarbáta í höfnum.
E (mikil afköst) - Skip sem notuð eru með uppgefnu álagi og hraða allt að 8% tímans (allt að 30% álagsþáttur). Dæmigerð notkun er frá 250 vinnustundum til 1000 vinnustunda á ári. Dæmigerð notkun getur innifalið eftirfarandi skip: skemmtibáta, eftirlitsbáta í höfnum, hafnsögubáta, fiskibáta og eftirlitsbáta.
TILKYNNING |
---|
Notkun á aflvélum fyrir ofan skilgreint afl getur valdið styttri endingartíma fyrir viðhald. |
Frekari upplýsingar um uppgefið afl aflvélar er að finna í þínum Notkunar- og uppsetningarleiðbeiningum eða hafðu samband við söluaðila Cat.